Ég heiti Sunnefa Pálsdóttir, áhugasöm og framsækin fagmanneskja með góða menntun og ástríðu fyrir því að hjálpa öðrum að umbreyta lífi sínu til hins betra.
Með BSc í tölvunarfræði, BA í teiknimyndagerð og gagnvirkum miðlum og 10 ára reynslu innan heilbrigðisgeirans (hjá Nox Medical), hef ég öðlast einstaka blöndu af greiningarhæfileikum og skapandi lausnamiðaðri hugsun sem nýtist vel í starfi. Ég er vottaður meðferðaraðili í dáleiðslu, Emotion Code (tilfinningalosun), öndunarþjálfun ofl. Ég býð uppá hlýja og áhrifaríka meðferð sem stuðlar að vellíðan og persónuþroska.
Á minni vegferð hef ég viðað að mér fjölmörgum tólum til að leiðbeina þér í átt að heilbrigðara og betra lífi. Hvort sem þú vilt ná tökum á kvíða, losa þig við óöryggi eða bara njóta meiri innri friðar, þá er ég hér til að styðja þig með skilningi og hlýju.
Tímabil jákvæðra breytinga í lífi þínu er rétt handan við hornið.