Ég heiti Sunnefa og er þér til þjónustu reiðubúin. Ég er mjög næm á orku og vellíðan fólks er mér hjartans mál. Ég hef á mini vegferð í gegnum lífið viðað að mér margvíslegri reynslu og þekkingu sem hefur gert það að verkum að fólki líður vel í kringum mig og finnst nærvera mín þægileg. Ég geisla gleði og hlýju til fólks sem til mín leitar og reyni eftir fremsta megni að skilja hvaðan það kemur og hvert það vill fara svo ég geti sem best aðstoðað við að leiðrétta stefnu þess og ýta þeim úr vör
Mér finnst það skipta máli að kenna fólki að halda áfram þeirri þýðingarmiklu vinnu sem það byrjar hjá mér og reyni því eftir fremsta megni að kenna þeim sem mest. Mitt hlutverk er að styðja þig og koma þér af stað í þinni heilunarvegferð, kjósir þú að vinna með mér.